Er þetta flottasta piparkökuhús landsins?

Guðni Bragason á Húsavík er mikill meistari og hér gefur að líta hans árlega piparkökuhús sem tekur flestu fram eins og sjá má.

Húsið er tvílift og einstaklega vel gert. Smáatriðin upp á tíu og meira að segja búið að mála veggina.

Við skorum á fleiri að senda okkur myndir eða láta okkur vita af eftirtektarverðum piparkökuhúsum og óskum Guðna til hamingju með vel unnið verk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert