Einn svaðalegasti súkkulaðidrykkur síðari ára

Andri Davíð býr til drykkinn góða.
Andri Davíð býr til drykkinn góða. mbl.is/Árni Sæberg

Keppnin um súkkulaðidrykk ársins, sem haldin var í samstarfi við Nóa-Síríus, gaf af sér margar þær geggjuðustu súkkulaðidrykkjaruppskriftir sem sögur fara af.

Annað sætið hlaut enginn annar en Andri Davíð Pétursson, annar höfunda Heimabarsins, en fáir eru flinkari bak við barborðið en hann. Drykkurinn hans er með því besta sem við höfum smakkað og rammáfengur í þokkabót þannig að passið ykkur vel.

Andri var mættur í stúdíóið til Loga og Sigga þar sem hann galdraði fram þennan girnilega drykk sem að sjálfsögðu var skírður Síríuslí.

Síríuslí

  • 30 ml Hvítserkur romm
  • 15 ml Rökkvi kaffilíkjör
  • Heitt suðusúkkulaði

Toppað með þeyttum rjóma og saltkaramellusúkkulaðispæni

Hann er síríusli góður þessi!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert