Fyllt kalkúnabringa með svakalegu meðlæti

mbl.is/Kristinn Magnússon

Það voru allir sammála um að kalkúnninn sem hér var eldaður hafi verið algjörlega frábær. Eldamennskan tók enga stund og útkoman var hreint frábær.

Upp­skrift­in birt­ist í Hátíðarmat­ar­blaði mbl og Hag­kaup. Blaðið er hægt að nálg­ast HÉR.

Fyllt kalkúnabringa

  • 1 stk. kalkúnabringa með döðlufyllingu
  • smjör
  • salt

Aðferð:

  1. Bringan er söltuð og síðan steikt á pönnu með olíu og smjöri, velt vel á allar hliðar til að fá góðan lit á hana alla.
  2. Þá er hún kláruð í ofni á 170°C í um það bil 30 mínútur á hvert kg, eða þar til kjarnhitinn nær 70°C, þá er hún tekin út og látin jafna sig áður en hún er skorin.

Sætkartöflumús

  • 1 kg sætar kartöflur
  • 3 dl rjómi
  • 5 dl vatn
  • 1 msk. salt
  • 5 msk. púðursykur
  • 1 stk. mandarína – safi

Aðferð:

  1. Sætu kartöflurnar flysjaðar og skornar í litla bita, settar í pott með rjómanum, vatninu og saltinu, soðnar þar til vel mjúkar.
  2. Þá er mesti vökvinn sigtaður frá og kartöflurnar maukaðar.
  3. Þá eru þær kryddaðar með púðursykrinum og mandarínusafanum, smakkaðar til með salti og pipar.

Rjómasveppasósa

  • 200 g sveppir
  • 100 g kastaníusveppir
  • 1 stk. hvítlauksgeiri
  • ½ l vatn
  • ½ l rjómi
  • 2 msk. kalkúnakraftur
  • olía
  • smjör
  • salt

Aðferð:

  1. Sveppirnir skornir í sneiðar og steiktir á háum hita í olíu og smá smjöri.
  2. Hvítlaukurinn skorinn smátt niður og bætt út í sveppina þegar þeir eru farnir að brúnast örlítið og þá steikt aðeins lengur.
  3. Vatninu er bætt út á pönnuna ásamt kalkúnakraftinum, látið sjóða niður um rúmlega helming.
  4. Þá er rjómanum bætt saman við og látið aftur sjóða niður á lágum hita þar til sósan fer að þykkna.
  5. Að lokum er hún smökkuð til með salti. Þessi sósa krefst svolítillar þolinmæði, en er algjörlega þess virði.

Stökkt parmesanrósakál

  • 500 gr rósakál
  • 1 stk. stór hvítlauksgeiri
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. chili-flögur
  • 50 g smjör
  • ¼ dl olía
  • 1 dl panko-raspur
  • 1 dl parmesanostur
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Botninn skorinn af rósakálinu og það skorið í helminga eða fjórðunga, fer eftir stærð.
  2. Smjörið brætt, hvítlaukurinn rifinn út í smjörið ásamt hvítlauksduftinu, chili-flögunum og olíunni.
  3. Þá er rósakálinu, smjörblöndunni, panko-raspinum og parmesanostinum blandað saman í stórri skál og síðan dreift á bökunarplötu, saltað og piprað yfir.
  4. Bakað í ofni á 210°C í um það bil 15 mínútur eða þar til rósakálið er orðið gullinbrúnt.

Heitar maísbaunir

  • 300 g maísbaunir
  • 50 g smjör
  • salt

Aðferð:

  1. Maísbaunirnar eru annaðhvort sigtaðar úr dós eða affrystar úr frosti áður en þær eru settar í pott með smjörinu.
  2. Hitað upp við vægan hita og smakkað til með salti.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert