Sinnepsgljáður hamborgarhryggur að hætti Berglindar Guðmunds

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir á GRGS.is á heiðurinn að þessari uppskrift sem er algjörlega geggjuð eins og henni einni er lagið.

Sinnepsgljáður hamborgarhryggur að hætti Berglindar Guðmunds

  • 1,5 kg KEA Hamborgarhryggur frá Norðlenska
  • mjúkt smjör
  • 3/4 dl dijonsinnep
  • 3/4 dl púðursykur
  • 3 msk. hunang
  • 3 msk. brauðrasp

Smyrjið álpappír með mjúku smjöri. Takið hamborgarhrygginn úr pakkningu, þerrið með viskustykki og vefjið álpappír þá utan um hann. Látið í ofnfast mót og hellið vatni í botninn. Eldið í 1 1/2 klst við 200°c. Hrærið hráefnin fyrir gljáann saman í skál. Takið kjötið úr ofninum þegar kjöthitamælirinn sýnir 57c og penslið gljáanum yfir kjötið. Stráið brauðraspi þá yfir gljáann. Látið aftur inn í ofn og eldið í 30 mínútur til viðbótar. Takið úr ofni þegar kjöthitamælirinn sýnir 65c og látið hvíla í 10 mínútur áður en hann er skorinn.

Rauðkál með eplum

  • 1 kg rauðkál
  • 2 epli
  • 1 laukur
  • 25 g smjör
  • 3 negulnaglar 5 allrahanda heil
  • 1 1/2 tsk. salt
  • 2 tsk. sykur
  • 1 msk. vínedik

Skerið rauðkálið og rífið eplin gróft eða skerið í þunnar sneiðar. Saxið laukinn og steikið hann á pönnu í smjörinu í 5 mínútur. Setjið rauðkál og epli á pönnuna og blandið því saman. Bætið við kryddi, salti, sykri og vínediki og eldið kálið u.þ.b. 40 mínútur undir loki. Smakkið kálið til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert