Rjómakaramelluís með ristuðum möndlum

mbl.is/Kristinn Magnússon
Hér erum við með ís sem flokkast undir að vera svívirðilega góður. Svo góður reyndar að þið megið til með að prófa hann.
Upp­skrift­in birt­ist í Hátíðarmat­ar­blaði mbl og Hag­kaup. Blaðið er hægt að nálg­ast HÉR.
Rjómakaramelluís með ristuðum möndlum
  • 5 dl rjómi (1)
  • 150 g rjómatöggur frá Nóa
  • 3 msk. rjómi (2)
  • 2 dl niðursoðin mjólk
  • 125 g karamelliseraðar möndlur

Aðferð:

  1. Möndlurnar muldar, passa að mylja þær ekki of smátt því gott er að hafa möndlubita í ísnum.
  2. Rjóminn (1) er þeyttur.
  3. Rjómatöggurnar eru bræddar í 3 msk. af rjóma (2) á vægum hita og kælt svo aðeins niður áður en karamellunni er blandað saman við niðursoðnu mjólkina.
  4. Að lokum er rjómanum, niðursoðnu mjólkinni og möndlunum blandað varlega saman. Sett í form og fryst.
Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert