Rosalegasta rjúpuveisla sem sést hefur lengi

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Berglid Hreiðars á Gotteri.is eldar hér rjúpur sem slógu algjörlega í gegn. Margir eru mjög íhaldssamir á rjúpuna en lesið þessa uppskrift endilega í gegn ... hún er rosaleg!

„Í fyrra þegar við elduðum rjúpur á aðfangadag sagði ég að ég yrði að ná að setja þessa uppskrift á bloggið fyrir næstu jól. Svo frussast tíminn áfram og þetta rétt hafðist hjá mér! Það var hann Balli vinur okkar sem reddaði rjúpunum þar sem veiði hefur verið dræm okkar megin þetta árið. Þær eru að sjálfsögðu skotnar í Búrfellshrauni í Mývatnssveit og vill Balli meina að þær rjúpur sé þær bestu á landinu og að sjálfsögðu skulum við trúa því!

Uppskriftin er hins vegar komin frá mömmu og Guðrúnu systur í bland. Mamma var með eina þar sem til dæmis hugmyndina með perurnar og rauðbeðusalatið var að finna en svo er eldunin og sósan komin frá systur minni. Margir mauksjóða rjúpurnar í sósunni og vilja láta þær hanga lengi svo villibráðarbragðið skíni sterkt í gegn. Þessi aðferð er þó öllu nýstárlegri og eru rjúpurnar mun mildari á bragðið en á hinn veginn.

Balla og fjölskyldu var að sjálfsögðu boðið í mat til þess að smakka herlegheitin og þó svo hann vilji meina að sín aðferð sé sú allra besta þá sagði hann ansi oft við matborðið „djöfull er þetta gott maður“, „Þetta er alveg geggjað“, „Hvernig eldaðir þú þetta annars“ … svo ætli hann verði ekki búinn að skipta um uppskrift á aðfangadag áður en við vitum af, í það minnsta farinn að gera báðar týpur.“

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

 

Rjúpur uppskrift

Fyrir 2-3 manns

Rjúpusoð uppskrift

  • ½ laukur
  • 30 g smjör
  • 2-3 læri, fóarn og hjörtu
  • 1 tsk. salt
  • 600 ml vatn

Aðferð:

  1. Steikið laukinn upp úr smjörinu og saltið.
  2. Steikið kjötið með lauknum þar til það brúnast og hellið þá vatninu yfir og leyfið að sjóða í um 1½ klukkustund (lengur ef þið viljið meira bragð).
  3. Sigtið síðan allt gumsið frá og notið soðið í sósuna.

Rjúpusósa uppskrift

  • 80g smjör
  • 2 msk. hveiti
  • rjúpusoðið hér að ofan
  • 300 ml rjómi
  • 3 tsk. Oscar Vildt-kraftur
  • 2 tsk. bláberjasulta
  • 2 tsk. gráðaostur
  • 3 msk. Muga-rauðvín
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið í potti, pískið hveitið saman við og hellið næst soðinu yfir og pískið vel saman allan tímann.
  2. Bætið þá rjóma og öðrum hráefnum saman við, smakkið til með krafti og kryddum og leyfið að malla aðeins.

Rjúpur eldun

  • 8 rjúpubringur
  • smjör til steikingar
  • salt og pipar
  • 6 x ½ niðursoðnar perur í dós
  • rifsberjasulta

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 190°C.
  2. Snöggsteikið bringurnar upp úr vel af smjöri í rúmlega hálfa mínútu á hvorri hlið.
  3. Raðið í eldfast mót og hellið sósu upp á miðjar bringur (berið restina af sósunni fram með máltíðinni).
  4. Bakið í 10-13 mínútur eftir stærð.
  5. Þegar fatið er tekið úr ofninum má raða perunum í kring og setja rifsberjasultu ofan í „holuna“.
  6. Njótið með rauðbeðusalati og brúnuðum kartöflum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert