Fela margar milljónir króna í súkkulaði

Þú gætir unnið peningaverðlaun ef þú finnur rétta eggið.
Þú gætir unnið peningaverðlaun ef þú finnur rétta eggið. Mbl.is/Fabio De Paola/ PA

Súkkulaðiframleiðandinn Cadbury's hefur falið milljón króna verðmæti í súkkulaðieggjum sem leynast í verslunum.

Hér um ræðir 146 egg, sem eru til hálfs súkkulaði og svo krem – en verðmætin í eggjunum nema allt að tveimur milljónum króna. Eggin eru falin í verslunum víðsvegar um Bretland og ber þar að nefna Iceland, Booths, Sainsbury´s og fleiri staði – og þá er hvert og eitt egg með misháum vinningi. Neytendur þurfa að borða í það minnsta hálft eggið til að komast að því hvort vinningur leynist þar inni, sem ætti ekki að vera vandamál fyrir marga.

Mbl.is/Fabio De Paola/ PA
Mbl.is/Fabio De Paola/ PA
Mbl.is/Fabio De Paola/ PA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert