Himneskar kjötbollur í rjóma tómatsósu með spagettí

mbl.is/Gott í matinn

Fljótleg og fjölskylduvæn uppskrift að kjötbollum sem stundum eru kallaðar pizzubollur. Sniðugur réttur í matarboðum þar sem börn og fullorðnir koma saman. Matur sem kætir og fyllir alla og er einstaklega umvefjandi á köldum vetrarkvöldum.

Kjötbollur í rjóma tómatsósu með spagettí

  • 2 stk. hvítar formbrauðsneiðar
  • 3⁄4 dl matreiðslurjómi eða rjómi
  • 500 g nautahakk
  • fínrifinn börkur af einni sítrónu
  • 4 msk. parmesanostur
  • 1 msk. þurrkað óreganó
  • 1⁄2 msk. sjávarsalt
  • 1⁄2 tsk. svartur pipar
  • ólífuolía og smjör

Sósa:

  • 1 stk. laukur, fínsaxaður
  • 2 stk. hvítlauksrif, marin
  • 1⁄2 stk. kjúklingakraftsteningur, mulinn
  • 8 dl tómatpassata
  • 2 1⁄2 dl matreiðslurjómi eða rjómi
  • 4 msk. tómatpúrra
  • handfylli af ferskri basilíku, gróft söxuð
  • sjávarsalt og svartur pipar
  • 500 g spagettí

Aðferð:

  1. Setjið formbrauðsneiðarnar í stóra skál og hellið rjómanum yfir. Látið þær sjúga vökvann í sig.
  2. Setjið hakk, sítrónubörk, óreganó, parmesanost, salt og pipar saman við.
  3. Blandið saman með höndunum og mótið kjötbollur. Stærð fer eftir smekk en ágætt að miða við stærð á golfkúlum.
  4. Hitið smá olíu og smjör á pönnu og steikið bollurnar í skömmtum. Geymið.
  5. Setjið smá meiri olíu og smjör á pönnuna og mýkið laukana í u.þ.b. 5 mínútur. Setjið kjúklingakraftsteninginn saman við.
  6. Hellið tómatpassata, rjóma, tómatpúrru og basilíku út á pönnuna. Hrærið og látið sjóða í 2 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
  7. Setjið loks bollurnar út í sósuna og látið malla á vægum hita undir loki í 10 mínútur.
  8. Sjóðið á meðan spagetti samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  9. Berið kjötbollurnar fram með spagettí og auka parmesanosti eða öðrum rifnum og bragðsterkum osti.

Höfundur uppskriftar: Erna Sverrisdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert