„Það er ekkert nýtt að þegar ég ætla að útbúa sósu með matnum mínum þá gríp ég alltaf í pakkasósu og færi hana yfir á næsta plan. Einar og sér eru þær góðar en þegar maður setur örlitla aukaást í pottinn verður hún yfirleitt geggjuð og allir halda að hún sé búin að fá að malla í pottinum tímunum saman,“ segir Guðrýn Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlum & smjöri.
„Að þessu sinni er það sveppasósa, sem er sú sósa sem ég sæki oftast í að gera svona með hversdagsmat eða um helgar. Hún passar með svo mörgu og öllum finnst hún svo góð á mínu heimili.
Hvort sem þið trúið því eða ekki þá er hún einnig ótrúlega góð köld, tilvalið að preppa sósu og taka með t.d. í útileguna fyrir grillkjötið eða bara á hamborgarana.“
Aðferð: