Heimilisilmur sem lyktar eins og tyggjó

Ilmurinn sem lyktar eins og tyggjó og kastar okkur nokkur …
Ilmurinn sem lyktar eins og tyggjó og kastar okkur nokkur ár aftur í tímann. mbl.is/Areon

Hér er á ferðinni heimilisilmur sem lyktar eins og tyggjó og við köstumst aftur um nokkur ár í nostalgíukast.

Nostalgían getur kviknað við minnstu tilefni – þá ef við finnum ákveðinn ilm, heyrum hljóð eða sjáum mynd. Þar sem skynfærin vakna til lífsins og fagna góðum minningum. Þannig er það með þessum tiltekna ilmi frá AREON, sem framleiðir meðal annars vinsælasta heimilisilm landsins „Vanilla black“ - ef marka má vinsældir ilmstráanna hér á landi.

En ilmurinn sem við vitnum í hér í dag, er þessi með tyggjóangan sem ýtir spékoppunum framar í munnvikin er minningarnar hellast yfir okkur. Fyrir áhugasama, þá fæst heimilisilmurinn HÉR.

mbl.is/Areon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert