Skyrkaka með möndlum og sítrónu

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér er á ferðinni algjörlega frábær uppskrift að skyrköku en möndlur og sítrónur eru bragðsamsetning sem vert er að prófa.

Það er Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem hún var afar ánægð með. Að auki notaði hún sykurminna kex sem er bónus.

„Möndlu- og sítrónubragð fer afar vel saman og elska ég sítrónuköku sem og möndluköku. Hér er búið að bæta skyri við þetta og útkoman varð þessi stórkostlega skyrkaka, segir Berglind um uppskriftina.

Skyrkaka með möndlu- og sítrónukremi
  • 300 g Bio Today-kex með möndlu- og sítrónubragði
  • 100 g brætt Bio Today ghee-smjör

 Aðferð:

  1. Setjið bökunarpappír í botninn á um 20-22 cm smelluformi.
  2. Myljið kexið í blandara þar til það er orðið duftkennt.
  3. Blandið bræddu ghee saman við og þjappið í botninn á smelluforminu og aðeins upp á kantana, setjið í frystinn á meðan þið útbúið fyllinguna.

Fylling

  • 500 ml rjómi
  • 2 msk. flórsykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • ½ tsk. sítrónudropar
  • 650 g vanilluskyr
  • 6 matarlímsblöð
  • 50 ml vatn

Aðferð:

  1. Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í um 10 mínútur.
  2. Hitið 50 ml af vatni að suðu, takið matarlímsblöðin upp úr kalda vatninu, eitt í einu, og vindið út í heita vatnið. Hrærið vel á milli hvers blaðs og þegar blöðin eru öll uppleyst má hella blöndunni í skál og leyfa hitanum að rjúka úr á meðan þið undirbúið annað.
  3. Þeytið rjóma, flórsykur, sítrónudropa og vanillusykur saman.
  4. Vefjið skyrinu saman við rjómablönduna með sleikju og hellið næst matarlímsblöndunni í mjórri bunu saman við og blandið vel saman.
  5. Hellið yfir kexbotninn í smelluforminu og setjið í kæli í að minnsta kosti fimm klukkustundir eða yfir nótt.
  6. Skerið síðan meðfram hringnum á forminu að innan áður en þið losið hliðarnar frá og flytjið kökuna yfir á fallegan disk.
  7. Skreytið með möndluflögum og sítrónusneiðum.

Skreyting

  • Til hamingju-möndluflögur
  • sítrónusneiðar
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert