Einn vinsælasti veitingastaður Austurlands til sölu

Ljósmynd/Facebook

Veitingastaðurinn Við voginn á Djúpavogi er til sölu en veitingastaðurinn hefur getið sér gott orð á undanförnum árum ef marka má umsagnir á vinsælum vefsíðum.

Í auglýsingunni segir meðal annars að veitingastaðurinn sé vinsæll áningarstaður með fastan kúnnahóp og mikla ásókn ferðamanna.

Fyrir áhugasama sem dreymir um að flytja út á land og prófa eitthvað nýtt er þetta kjörið tækifæri enda Djúpivogur dásamlegur bær.

Hægt er að skoða auglýsinguna HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert