Besti hummus norðan Alpafjalla

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér tökum við stórt upp í okkur en stöndum fyllilega við þau orð. Hér er Berglind Hreiðars á Gotteri.is búin að galdra fram dýrindis hummus sem ærir óstöðuga.

Hvet ykkur til að prófa. Hummus er nefnilega allra meina bót!

Avókadó hummus og hrökkbrauð

  • 1 poki Til hamingju hrökkbrauðsblanda
  • 230 g kjúklingabaunir (úr krukku/dós)
  • 1 þroskað avókadó (2 ef þið notið úr neti)
  • 1 msk. Tahini
  • ½ lime – safinn
  • 1 pressað hvítlauksrif
  • 3 msk. ólífuolía
  • ½ tsk. salt

Aðferð:

  1. Bakið hrökkbrauðið samkvæmt leiðbeiningum á poka.
  2. Setjið öll önnur hráefni í matvinnsluvél/blandara og blandið þar til þykkt mauk hefur myndast.
  3. Ef þið notið blandara (eins og ég gerði) þá gætuð þið þurft að skafa niður nokkrum sinnum og „púlsa“.
  4. Setjið í fallega skál og toppið með smá olíu, chilidufti og kóríander ef þið óskið þess.
  5. Njótið með heimabökuðu hrökkbrauðinu.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert