Sjúklega gott kjúklingalasagna sem smellpassar í kvöldmatinn

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Hér erum við með hinn fullkoma kvöldverð! Kjúklingalasagna er alltaf spennandi kostur og sívinsæll á matborðið. Það er engin önnur en Berglind Guðmunds á GRGS.is sem á heiðurinn að uppskriftinni.

Ómótstæðilegt kjúklingalasagna með tómatrjómasósu og spínati

  • 500 g kjúklingabringur
  • 1 laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 tsk chilíflögur
  • 1 tsk paprika
  • 1,5 tsk karrý
  • salt og pipar
  • 1 teningur kjúklingakraftur
  • 1 dl vatn
  • 500 ml 36% rjómi frá Örnu
  • 400 g pastasósa
  • 12 lasagnaplötur
  • 80 g spínat
  • 1 kúla ferskur mozzarella

Leiðbeiningar

1. Hitið olíu á pönnu.

2. Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið.

3. Skerið kjúkling í bita og setjið saman við. Brúnið kjúklinginn.

4. Bætið kryddum saman við og blandið öllu vel saman.

5. Látið pastasósu, kjúklingatening, vatn og rjóma saman við allt.

6. Látið malla í 5-10 mínútur við lágan hita.

7. Bætið spínati saman við og smakkið til með salti og pipar.

8. Penslið botninn á ofnföstu móti með olíu.

9. Látið smá af sósunni (bara sósu ekki kjöt) í botninn á sósunni. Leggið pastaplötur yfir.

10. Látið þá kjötsósuna yfir plöturnar og plötur yfir það og svo koll af kolli.

11. Látið í 200°c heitan ofn í 25 mínútur.

12. Takið þá úr ofni og látið mozzarella yfir allt. Látið í ofn í 10 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert