Kjúklingarétturinn sem ber upp bónorðið

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Þessi kjúklingaréttur kallast því frumlega nafni „Viltu giftast mér?“ og er að sögn Berglindar Guðmunds á GRGS.is bæði einfaldur og ótrúlega bragðgóður!

Við treystum því og skellum í eitt bónorð um helgina - eða að minnsta kosti kjúklingabónorð.

Viltu giftast mér?

  • 1-2 msk. ólífuolía
  • 1 kg kjúklingalæri
  • sjávarsalt og svartur pipar

Sósa:

  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 msk. ferskt timían
  • 1 tsk. muldar chilíflögur
  • 180 ml kjúklingasoð
  • 120 ml 36% rjómi frá Örnu
  • 30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
  • 1/2 dl rifinn parmesan
  • Fersk basilíka

Leiðbeiningar

  1. Þerrið kjúklinginn með eldhúsbréfi og kryddið með salti og pipar.
  2. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Takið kjúklinginn til hliðar og hellið helming vökvans af pönnunni.
  3. Steikið hvítlauk, timían og muldar chilíflögur í 1 mínútu.
  4. Bæði kjúklingasoði, rjóma, sólþurrkuðum tómötum og parmesan og látið malla. Bætið kjúklingnum út á pönnuna fitan snýr upp..
  5. Eldið í 180°C heitum ofni í 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  6. Stráið saxaðri basilíku yfir réttinn og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert