Besta húsráðið varðandi örbylgjuofninn

Það eru til ýmsar leiðir við að þrífa örbylgjuofninn.
Það eru til ýmsar leiðir við að þrífa örbylgjuofninn. mbl.is/

Hér bjóðum við upp á spánnýtt húsráð er snýr að þrifum á örbylgjuofninum – og engin sítróna á í hlut.

Við höfum séð nokkur ráðin er snúa að þrifum þar sem sítrusávöxturinn er í aðalhlutverki, en ekki að þessu sinni því hér er örbylgjuofninn þrifinn með annarskonar aðferð sem er afar einföld. Taktu fram skál sem má fara snúning í ofninum. Helltu í það minnsta hálfum brúsa af ediki í skálina og settu nokkra dropa af uppþvottalögi saman við. Settu skálina inn í örbylguofninn og láttu ofninn vinna í þrjár mínútur - og bíddu í aðrar fimm mínútur þar til þú opnar ofninn. Nú ætti öll fita og óhreinindi að hafa losnað og þú getur þurrkað allt burt með rökum klút.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert