Hittust á Hótel Borg til að ræða markaðssetningu grænmetis

Það var á hádegisverðarfundi, 13. janúar árið 1940, að nokkrir garðyrkjubændur komu saman á Hótel Borg til að ræða markaðssetningu grænmetis. Nokkrum mánuðum síðar, þann 1. maí, tók Sölufélag garðyrkjumanna formlega til starfa.

Saga SFG er samofin sögu grænmetisræktar á Íslandi. Stofnun félagsins setti ný viðmið í markaðssetningu og gæðakröfum við framleiðslu og sölu grænmetis sem hefur vaxið og þróast með hverjum áratug.

Miklar vonir voru bundnar við stofnun félagsins og árangurinn hefur ekki valdið vonbrigðum. Frá stofnun Sfg hafa þrjár kynslóðir grænmetisbænda lagt afurðir sínar inn í félagið. Með hverri kynslóð hafa komið nýjar áherslur sem SFG hefur lagað sig að með hagsmuni bænda og neytenda í fyrirrúmi.

Fyrsta kynslóð félagsmanna plægði akurinn með áherslu á framleiðslugetu og flokkun. Íslenskir grænmetisbændur sýndu og sönnuðu að á Íslandi má rækta afbragðs grænmeti árið um kring.

Önnur kynslóð fylgdi í plógfarið með aukinni áherslu á vöruþróun, merkingar og gæðastjórnun. Um leið lagði SFG grunninn að öflugu kynningarstarfi sem uppskorið hefur tryggð íslenskra neytenda til hagsbóta fyrir alla grænmetisbændur landsins. Nú til dags vita allir að íslenskt grænmeti stendur fyrir gæði, beint frá bónda.

SFG lét framleiða fyrir sig þetta skemmtilega myndband sem sýnir hvernig grænmetisræktun hefur þróast hér á landi og hversu einstök hún er.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert