Kjöt í karrí upp á gamla máta mátann

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Það er fátt sem toppar gott kjöt í karrí enda í uppáhaldi hjá mörgum. Hér er uppskrift sem er algjörlega upp á tíu og við hvetjum ykkur til að prófa.

Kjöt í karrí upp á gamla máta mátann

  • 1 kg súpukjöt, framhryggur eða annað lambakjöt á beini
  • 1 l vatn
  • 2 lárviðarlauf
  • pipar
  • salt
  • 4-5 gulrætur
  • 1 laukur
  • 30 g smjör
  • 2-3 tsk. karríduft
  • 2.5 msk. hveiti

Aðferð:

  1. Skolið kjötið vel og setjið í pott. Hellið köldu vatni yfir og hitið að suðu og fleytið froðunni ofan af.
  2. Bætið við lárviðarlaufi, pipar og salti í pottinn og látið sjóða við vægan hita í 25 mínútur.
  3. Skerið gulrætur og lauk og setjið út í. Látið sjóða í 25 mínútur í viðbót.
  4. Takið kjötið og gulrætur upp úr og haldið því heitu.
  5. Bræddu smjörið í öðrum potti. Stráið karríduftinu yfir, hrærið og látið krauma í 1/2 mínútu.
  6. Stráið hveitinu yfir og hrærið þar til það hefur samlagast smjörinu.
  7. Hellið soði saman við smátt og smátt þar til sósan er hæfilega þykk og hrærið stöðugt á meðan.
  8. Látið sósuna sjóða í 5-10 mínútur og bætið örlítið af rjóma eða mjólk saman við eftir smekk og smakkið til.
  9. Berið fram með hrísgrjónum eða kartöflum.
Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert