Ný hönnun í eldhúsinnréttingum

Eldhússkápar í lit í bland við hlýjan við, er það …
Eldhússkápar í lit í bland við hlýjan við, er það heitasta í dag. Mbl.is/Svane Køkkenet

Eldhúsframleiðandinn Svane Køkkenet, tekur nýja stefnu á nýju ári og örvar skynfærin svo ekki sé minna sagt.

Nýja vörulínan þeirra er óður til skandinavískrar hönnunarhefða og frelsis. Hvítum eldhúsum er skipt út fyrir litrík eldhús þar sem stemningin einkennist af gleði og hlýjum viðartegundum sem tala til skilningarvita okkar. Hér má auðveldlega blanda saman litum, efnum og borðplötum á afar auðveldan máta. Litir hafa farið ört vaxandi í innréttingum og þessi nýja hönnun kemur til að mynda í nýjum dökkum lit sem minnir á jarðveginn – og það í tíu mismunandi litbrigðum.

Viður, hlýja og notalegheit eru síðan önnur tískustefna sem vörulínan nær að fanga með hönnun sinni, sem sést svo greinilega í nýjum frontum á skúffum og skápum – og passar svo smekklega saman við nýju litatónana eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Mbl.is/Svane Køkkenet
Mbl.is/Svane Køkkenet
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert