Ofursnjöll leið til að þrífa ofngrindina

Það er mun auðveldara en við höldum að þrífa ofngrindurnar.
Það er mun auðveldara en við höldum að þrífa ofngrindurnar. mbl.is/

Það jafnast fátt á við gott bað, og það sama gildir um í þessu tilviki er við þrífum ofngrindurnar skínandi hreinar á ný.

Það þarf ekki að vera flókið til að virka, sem sýnir sig og sannar í þessu tilviki. En kona nokkur deildi því á samfélagsmiðlinum Facebook hvernig hún þrífur ofngrindurnar með vatni og uppþvottavélatöflum einu saman. Hún leggur grindurnar í bleyti í baðkarinu og setur þrjár töflur með – því næst lætur hún grindurnar liggja í tvo tíma áður en hún skolar skítinn burt, sem hreinlega lekur af. Besta við þetta allt saman er, að hún þrífur baðkarið vel á eftir – svo að því verki lýkur þá svo til á sama tíma.

mbl.is/Facebook
mbl.is/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert