Algjörlega frábærar kjötbollur í geggjaðri sósu!

Ljósmynd/Gott í matinn

Kjötbollur klikka aldrei í matinn og hér erum við með uppskrift sem er klárlega með þeim betri sem við höfum smakkað.

Kjötbollur í kröftugri rjómasósu

Kjötbollur:

  • 250 g nautahakk
  • 250 g svínahakk
  • 100 g furuhnetur (einn poki) ristaðar og saxaðar
  • 2 skarlottulaukar, fínsaxaðir
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • 1 egg
  • 1 dl rifinn parmesanostur
  • 1 1⁄2 tsk. þurrkað oregano
  • Fínrifinn börkur af 1 sítrónu
  • Sjávarsalt og svartur pipar

Sósa:

  • 3 1⁄2 dl rjómi frá Gott í matinn
  • 1 1⁄2 dl vatn
  • 2 tsk. Dijon sinnep
  • Rifinn piparostur eftir smekk

Meðlæti:

  • 500 g penne pasta
  • Ítölsk steinselja, söxuð
  • Parmesanostur

Aðferð:

  1. Hitið 1 msk. af olíu á pönnu.
  2. Setjið skarlottulauk, hvítlauk, oregano og pínu salt og pipar á pönnuna. Mýkið laukinn í nokkrar mínútur.
  3. Bætið furuhnetunum saman við og steikið áfram í mínútu eða svo.
  4. Setjið í stóra skál ásamt hakkinu, egginu, sítrónuberkinum og parmesanostinum.
  5. Hrærið saman með höndunum og mótið síðan bollur. Stærð fer eftir smekk.
  6. Steikið bollurnar á pönnu upp úr olíu. Passið að ofelda þær ekki.
  7. Setjið síðan rjóma, vatn og sinnep út á pönnuna. Látið suðuna koma upp og látið malla við vægan hita í um 5-10 mínútur.
  8. Bragðbætið sósuna með rifnum piparosti, salti og pipar ef þarf.
  9. Berið fram með soðnu penne pasta, saxaðri steinselju og parmesanosti.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir

View this post on Instagram

A post shared by Matur á MBL (@matur.a.mbl)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert