Kakan sem strákarnir hennar Evu elska

Ljósmynd/GRGS.is

Til er sú kona sem er flinkari en flestir að baka og það er Eva María, sem alla jafna er kennd við kökugerðina Sætar syndir.

Eva deildi uppskrift að geggjaðri Rice Krispies köku hjá Berglindi Guðmunds inn á GRGS.is á dögunum og máttum við til með að deila þeirri dýrindis uppskrift með þjóðinni þar sem slíkar kökur eru í uppáhaldi hjá ansi mörgum.

Strákarnir mínir elska þessa köku en þessi uppskrift er sjúklega einföld og því tilvalin fyrir litla bakara, segir Eva um uppskriftina sem er vel þess virði að prófa.

Rice Krispies kaka með karamellu, þeyttum rjóma og ferskum jarðaberjum

  • 200 grömm smjör
  • 200 grömm Pralín súkkulaði með karamellufyllingu
  • 4 msk. síróp
  • 4 bollar Rice Krispies
  • Karamella:
  • 150 g karamellutöggur
  • 2 msk. karamellukurl frá Nóa Síríus
  • 250 ml rjómi
  • fersk jarðaber
  • 250 ml rjómi, þeyttur ofan á kökuna

Aðferð:

  1. Setjið smjör, Pralín súkkulaði og síróp saman í pott og bræðið við lágan hita.
  2. Setjið Rice Krispies í skál og hellið úr pottinum í skálina og blandið vel saman. Magn af Rice Krispies er smekksatriði en mér finnst best að byrja með ekki of mikið Rice Krispies og bæta svo hægt og rólega en mér finnst best að hafa það frekar blautt af karamellunni. Svo er þessu skellt í fallegt mót og þjappað niður og inn í ísskáp þar til þetta er orðið kalt.
  3. Karamellan: Smellið öllu í pott og bræðið við vægan hita. Passið að brenna ekki karamelluna og mæli með að standa yfir pottinum og hræra í á meðan þetta bráðnar og blandast saman.
  4. Þeytið rjómann og skerið jarðaber í helminga.
  5. Svo er botninn tekinn úr kæli, gott að setja smá karamellu yfir botninn, svo þeyttan rjóma, aftur karamellu og svo skreyta með jarðaberjum. Gott er að leyfa kökuna að fara aftur inn í kæli í 20 mínútur áður en þið njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert