Kjötsúpan sem á eftir að trylla landann

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Hér er á ferðinni ein mest spennandi súpa sem við höfum rekist á í langan tíma. Við erum að tala um kjötsúpu með asísku tvisti og er eiginlega nauðsynlegt að prófa enda nánast gulltryggt að hér er sælgæti á ferðinni.

Kjötsúpa með asísku tvisti

  • 800 gr lamba súpukjöt (má nota annað feitt lambakjöt)
  • 1,6 l vatn
  • 50 ml soya sósa
  • 6-7 dropar fiskisósa
  • 100 g engifer, skrældur
  • 2 stk. chili
  • 6 geirar hvítlaukur
  • 8 stk. nýjar gulrætur
  • 1 stk. laukur, skrældur
  • 30 g hrísgrjón 1 búnt vorlaukur 15 gr. kóríander
  • 1 búnt vorlaukur
  • 15 g kóríander

Aðferð:

  1. Þessi er kjötsúpa er mjög ólík hinni klassísku kjötsúpu og leitað er bragða í austurlenskri matargerð. Hér er tilvalið fyrir þá djörfu að leika sér enn frekar með bragðið og breyta og bæta eftir smekk og ævintýragirni og t.d. nota ögn af kóresku gouchang mauki með í súpuna. Svo má líka nota aðra bita en súpukjöt, t.d. gúllas og stytta þannig eldunartímann.
  2. Byrjið á setja kjöt og vatn í pott, stillið á miðlungshita og bíðið eftir suðu.
    Á meðan að suðan er að koma upp skerið chili, hvítlauk og engifer í smáa bita. Því næst einnig gulrætur og lauk í smáa bita. Þegar suðan er komin upp, fleytið þá froðuna sem kemur í fyrstu suðu frá.
  3. Því næst bætið við soya sósu, fiskisósu, engifer, hvítlauk og chili og leyfið að sjóða í 20 mín. Hugrakkir geta bætt við 2 msk. af gouchujang mauki út í soðið.
  4. Bætið við gulrótum, hrísgrjónum og lauk og sjóðið í rúmlega 30 mínútur. Smakkið til með soyasósu eða salti. Saxið fínt vorlauk og kóríander sem fólk setur í skálarnar rétt áður en súpan er borin fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert