Þeir sem hafa heimsótt Stykkishólm hafa væntanlega rekist á Meistarann sem blasir við þegar keyrt er inn í bæinn. Meistarinn er einn best heppnaði pylsuvagn sem sést hefur og býður upp á úrval pylsurétta sem eru hver öðrum girnilegri.
Gripurinn er til sölu og ljóst að hér er á ferðinni spennandi tækifæri fyrir áhugasama. Verðmiðinn er 13 milljónir en hægt er að skoða auglýsinguna HÉR.