Helgarbrönsinn sem er löðrandi í osti

Yndisaukandi ostafrittata með fjórum mismunandi ostum.
Yndisaukandi ostafrittata með fjórum mismunandi ostum. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Þessi uppskrift er æðisleg í helgarbrönsinn! Ostafrittata með fjórum mismunandi ostum, borin fram með fersku salati í boði Hildar Rutar.

Yndisaukandi ostafrittata

Uppskrift fyrir 4-6

  • 6 egg
  • 250 ml rjómi
  • 1 dl rifinn parmesan ostur
  • Salt og pipar
  • Cayenne pipar
  • 1 tsk olía (olívuolía eða avocado olía)
  • 20 gr smjör
  • 2 dl rifinn cheddar ostur
  • 1 dl kotasæla
  • 1 dl rifinn mozzarella ostur
  • 1 msk steinselja

Aðferð:

  1. Hrærið egg, rjóma, parmesan, cayenne pipar, salt og pipar saman.
  2. Hitið olíu og smjör  á 20 – 25 cm pönnu sem má fara inn í ofn og stillið á vægan hita. Bræðið smjör og olíu á pönnunni.
  3. Hellið síðan eggjablöndunni á pönnuna og látið malla í 5-7 mínútur.
  4. Því næst dreifið cheddar osti, kotasælu og mozzarella yfir blönduna og eldið í 12 mínútur.
  5. Dreifið steinseljunni yfir og bakið inn í ofni í 10 mínútur við 180°C. Toppið með rifnum parmesan osti. Berið fram með fersku salati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert