Mottuegg til styrktar Mottumars

Nói Síríus hefur framleitt Mottumars páskaegg í samstarfi við Krabbameinsfélagið til að styðja við starfsemi félagsins og krabbameinsrannsóknir.

Eggin eru auðþekkjanleg á umbúðunum og skemmtileg viðbót við Mottumars því þannig geta skegglausir fengið sér fallegt súkkulaðiskegg ef svo ber undir.

Skemmtilegt framtak fyrir þarft málefni og eru eggin til sölu á flestum útsölustöðum páskaeggja sem eru hægt og rólega að yfirtaka verslanir.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert