Skinkubrauðrétturinn sem toppar allt

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Haldið ykkur fast því hér er á ferðini skinkubrauðréttur sem mun gera allt vitlaust. Við erum að tala um skinku, brædda osta, dýrindis fínerí og kröns á toppnum. Það er engin önnur en veisludrottningin Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessar tímamóta snilld. 

Heitur brauðréttur með pepperoni, skinku og krönsi

Uppskrift dugar í 2 frekar grunn föt/mót

  • 14 hvítar brauðsneiðar
  • 1 rauð paprika
  • 1 Mexíkó kryddostur
  • 1 Pepperoni kryddostur
  • 100 g Philadelphia rjómaostur með sweet chili
  • 700 ml rjómi
  • 200 g skinka
  • 80 g pepperoni (mini)
  • Rifinn ostur
  • Um ½ poki Maarud Potetgull með papriku
  • Ólífuolía til steikingar
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Penslið tvö eldföst mót að innan með ólífuolíu/smjöri.
  3. Skerið skorpuna af brauðinu og rífið niður í bita yfir botninn á hvoru formi.
  4. Skerið paprikuna smátt og steikið upp úr ólífuolíu, saltið og piprið eftir smekk.
  5. Hellið helming rjómans á pönnuna, rífið báða kryddostana út í og blandið rjómaostinum líka saman við.
  6. Hrærið þar til ostar hafa bráðnað og bætið þá restinni af rjómanum á pönnuna og hrærið vel.
  7. Skerið skinkuna niður og dreifið yfir brauðið í forminu ásamt pepperoni.
  8. Hellið sósunni jafnt yfir brauðblönduna í hvoru formi fyrir sig, toppið með rifnum osti og bakið í 20 mínútur.
  9. Takið þá út, myljið snakkið gróft yfir og hitið í um 5 mínútur til viðbótar.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert