Uppáhalds snakkið hennar Svönu Lovísu

Svana Lovísa bloggar undir nafninu Svart á hvítu, á Trendnet.
Svana Lovísa bloggar undir nafninu Svart á hvítu, á Trendnet. mbl.is/Aldís Pálsdóttir

Sykurlausar súkkulaði trufflur eru uppáhalds snakkið hennar Svönu Lovísu Kristjánsdóttur, sem bloggar undir nafninu „Svart á hvítu“ á Trendnet. En hún hefur tileinkað sér sykurlausan lífsstíl síðastliðið ár og hefur verið að prófa sig áfram með allskyns sykurlaust góðgæti sem þetta hér.

Sykurlausa snakkið hennar Svönu Lovísu

  • 1½ plata sykurlaust súkkulaði (ég nota Dark frá Valor)
  • 1/2 bolli rjómi
  • 2 msk. smjör
  • 1 tsk. espressóduft (ég opnaði kaffihylki)
  • 1 tsk. vanilludropar

Aðferð:

  1. Hita allt saman í örbylgju á háum hita í ca 1 mínútu og hræra saman. (Einnig hægt að bræða yfir vatnsbaði).
  2. Settu skálina í frysti í u.þ.b. klst og bíddu þar til blandan þykknar. Taktu svo skálina út og nú er komið að því að rúlla súkkulaðinu í höndunum í litlar kúlur í munnbitastærð. Veltu þeim svo upp úr bökunarkakói. Best er að geyma kúlurnar í frysti / kæli, og þær verða jafnvel enn betri með því að fá að geymast smá. Njóttu!
Súkkulaði trufflur! Snakkið sem Svana Lovísa elskar.
Súkkulaði trufflur! Snakkið sem Svana Lovísa elskar. mbl.is/Svartáhvítu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert