Öryggismyndbandi með Ryan Reynolds hafnað

Ryan Reynolds fagnaði afmælinu sínu nú á dögunum.
Ryan Reynolds fagnaði afmælinu sínu nú á dögunum. Mbl.is/skjáskot af Instagram

Nú rekur sjálfsagt marga í rogastans en kanadíska sjarmatröllið Ryan Reynolds birti á dögunum öryggismyndband fyrir British Airways sem féll ekki í nógu góðan jarðveg – að minnsta kosti ekki til að komast í almenna spilun.

Myndbandið var framleitt til að fagna því að Aviation ginið sem er í eigu Reynolds verður framvegis í boði fyrir farþega British Airways en samkvæmt því falla litlar ginflöskur úr loftinu til að róa taugarnar og þurfi að lenda vélinni á vatni eru ginflöskulaga vindsængur í boði fyrir farþega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert