Í Listhúsinu Laugardal hefur opnað nýr veitingastaður. Maðurinn við stjórnvölinn er enginn aukvisi í bransanun enda hefur hann verið órjúfanlegur hluti af íslensku þjóðlífi í áraraðir eða allt frá því að hann sló í gegn með matreiðsluþáttum sínum á Stöð 2. Hann hefur verið fjarri góðu gamni en er nú snúinn aftur með veitingastaðin Felino.
Það er glaðbeittur Jói sem heilsar blaðamanni. „Kokkurinn er veikur þannig að ég var einn í eldhúsinu í hádeginu,” segir hann brosandi. Húsfyllir kom ekki í veg fyrir að hinn goðsagnkenndi veitingamaður léki listir sínar fyrir viðskiptavini en hann segir að yfir helmingur pantananna hafi verið pítsur og þær séu fljótgerðar. Ég veit þó betur en það er ekkert grín að keyra hádegi einn á þétt setnum veitingastað. Það er bara fyrir lengra komna að ráða við það.
Pítsur í sérflokki
Matseðillinn samanstendur af girnilegum pastaréttum, steikum, pítsum og samlokum. Hvergi er slegin feilnóta og ítölsku áhrifin nánast áþreifanleg. Til að toppa herlegheitin er veglegur eftirréttaseðill þar sem bakarinn í Jóa fær sín notið. Að því leytinu til er Felino líka hið fullkomna kaffihús yfir daginn þar sem hægt er að koma sér fyrir í notalegu umhverfinu og gæða sér á dýrindis kaffiveitingum. Kökuúrvalið samanstendur af mörgum af þekktustu tertum Jóa auk ítalskra eftirrétta.
„Svo eru það pítsurnar en ég vil meina að þær séu alveg einstakar enda gerðar úr 20 ára gömlum súr,” segir Jói og bætir við. „Þetta er súrinn minn sem ég þróaði fyrir tuttugu árum og hef fóðrað allar götur síðar og notað í mínar uppskriftir. Ég hef alltaf haldið honum við og nú er hann að nýtast í bakaríinu mínu hér sem ég get nánast fullyrt að sé minnsta bakarí landsins. Við bökum allt frá grunni og pítsurnar eru svo algjörlega einstakar. Við notum ekkert ger og engin aukaefni. Bara hreinræktað súrdeig með dýrindis áleggi,” segir Jói og sjá má að hvert smáatriði er úthugsað á matseðlinum.
Litli leynistaðurinn í Laugardalnum
Mikið hefur verið að gera síðan staðurinn opnaði og hafa viðtökurnar, að sögn Jóa verið afar góðar. „Ég ákvað að auglýsa ekkert heldur setti ég bara inn á Instagram að ég væri búinn að opna,” segir Jói en fylgjendur hans á samfélagsmiðlinum eru þó fleiri en hjá meðal áhrifavaldi. „Það má því segja að fyrstu viðskiptavinirnir mínir hafi verið Instagram vinir mínir,” segir hann brosandi en staðurinn er þétt setinn. Hægt er að bóka borð í gegnum heimasíðu veitingastaðarins og mælir Jói með því þó að alltaf sé hægt að reka inn nefið. „Það er samt betra að bóka. Við erum til dæmis fullbókuð í kvöld,” segir hann og ljóst er að opnun staðarins er mikill hvalreki fyrir íbúa í nágrenninu. „Ég hef fengið nokkrar ábendingar um að það vanti allar merkingar utan á bygginguna. Það sé ekkert auðvelt að finna staðinn en mér finnst það viðeigandi. Þetta er lítil falin perla í Laugardalnum og merkingarleysið er táknrænt fyrir það,” segir Jói enda er staðurinn bæði lítill og heimilislegur.
Gamall draumur að rætast
Það má segja að Jói sé með meirapróf í faginu enda einn sá reynslumesti sem við eigum. Hann sló upphaflega í gegn með matreiðsluþáttum sínum sem voru þeir vinsældustu hér á landi um árabil. Samnefnd bakarí nutu mikilla vinsælda en sjálfur átti Jói sér alltaf draum um að opna lítinn ítalskan veitingastað. „Það er mjög mikilvægt að það komi fram að þetta er ekki ítalskur veitingastaður heldur með ítölsku ívafi,” segir Jói og er ekkert að grínast. Þetta er Ítalía eins og ég upplifi hana. Allt það sem mér finnst best í þeirri matargerð og gert með mínu lagi. Það sagði eitt sinn ítalskur veitingamaður við mig að það væri ekki hægt að opna ítalskan veitingastað nema á Ítalíu og því nota ég fekar þetta orð,” segir Jói. „Ég hef ferðast mikið um Ítalíu og tekið upp fjölmarga sjónvarpsþætti þar. Ég þekki ítölsk hráefni vel og hvernig þau eru búin til. Mig dreymdi svo alltaf um að opna lítinn veitingastað með ítölsku ívafi og nú hefur sá draumur ræst,” segir Jói og ekki laust við að hann sé hálf meir en þeir sem fylgja honum á Instagram vita að hann hefur mikið tjáð sig þar um lífið og tilveruna. „Þakklæti er það sem ég upplifi hvað sterkast. Þakklæti til vina minna sem hafa staðið við bakið á mér. Þakklæti fyrir lífið. Ég fékk fyrir hjartað fyrir nokkrum vikum og ef það hefði gerst fjarri mannabyggðum væri ég ekki hér. En hér er ég og er þakklátur fyrir það. Ég er búinn að opna drauma veitingastaðinn minn og ég er svo þakklátur fyrir það,” segir Jói að lokum og þarf að rjúka aftur inn í eldhús. Líf veitingamannsins er stöðugur hasar en fyrir menn eins og Jóa er það í blóðinu og órjúfanlegur hluti af þeim.