Lúxusgrill hækkað um 70% í Costco

Áhugafólk um Costco fylgist vel með þróun verðlags þar á bæ og þótti mörgum nóg um þegar borin voru saman verð á Smoke Hollow kolagrillinu sem hefur verið í sölu þar undanfarin ár.

Árið 2018 kostaði grillið 29.999 krónur en í dag er það á 49.999 krónur. Er þetta verðhækkun upp á tæp 70%.

Árið 2021 kostaði grillið 36.999 krónur.

Ekki liggja fyrir haldbærar skýringar á verðhækkununum sem eru í engu takti við verðlagsþróun hér á landi né í nágrannalöndum okkar. Grillin hafa verið vinsæl meðal grilláhugafólks enda bæði hægt að grilla og reykja mat í þeim. Þau eru úr steypujárni og afar vönduð og því ekki skrítið að slegist sé um þau.

En 70% verðhækkun er kannski fullmikið... eða hvað?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert