Stelton kynnir nýjan lit á vinsælustu kaffikönnu heims

Heiðgul eins og sólin!
Heiðgul eins og sólin! mbl.is/Stelton

Ein vinsælasta kaffikanna allra tíma, er án efa þessi hér frá Stelton – sem nú er fáanleg í mjúkum gulum lit og smellpassar inn á páskaborðið. Heiðgul eins og sólin!

Kaffikannan EM77, var hönnuð af Erik Magnussen árið 1977 og finnst í ótal útfærslum og litum – enda ein sú vinsælasta á kaffiborðið ef marka má fagurkera landsins og enn víðar út fyrir landssteinana. Hér er svo kannan mætt í splúnkunýjum lit fyrir páskana, en liturinn kallast „Mellow Yellow“ og setur svo sannarlega punktinn yfir i-ið á borðið með hækkandi sól.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert