Opna glæsilega mathöll í Vatnsmýrinni

Hafsteinn og Björn Bragi.
Hafsteinn og Björn Bragi.

VERA matur og drykkur opnar í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri í maí. Um er að ræða mathöll með átta vönduðum og spennandi veitingastöðum og glæsilegan viðburðasal sem hugsaður er fyrir tónleika, uppistand, veislur og hvers kyns viðburði.

Forsvarsmenn verkefnisins og eigendur eru Björn Bragi Arnarsson og Hafsteinn Júlíusson. Björn Bragi er framkvæmdastjóri VERU en Hafsteinn og fyrirtæki hans HAF Studio sjá um alla hönnun. Hafsteinn og Björn unnu áður saman að Borg29 mathöll í Borgartúni sem opnaði í apríl 2021.

Í VERU verða átta veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreyttan og vandaðan mat í fallegu umhverfi. Þar verður hægt að fá góðan morgunmat, hádegismat og kvöldmat og þess á milli getur fólk sest niður og fengið sér kaffi eða drykk í góðra vina hópi.

Gróska er á meðal stærstu og glæsilegustu bygginga landsins og verður öll hönnun og útlit VERU í takti við það.

Að sögn Björns Braga hefur gengið virkilega vel að fá inn spennandi veitingastaði. „Við höfum fyllt sjö af átta plássum með virkilega spennandi og flottum aðilum, en eigum eftir að manna síðasta plássið.“

„Viðburðasalurinn mun rúma um 200 gesti og er hann hugsaður fyrir tónleika, uppistand, veislur og hvers kyns viðburði. Það er mikil þörf fyrir góðan sal af þessari stærðargráðu miðsvæðis í Reykjavík. Vonir standa til að veislusalurinn muni opna í júní. Gróska er eitt glæsilegasta hús landsins. Þar starfa öflug fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og eiga mörg þeirra í góðu samstarfi við háskóla á sviði tækniþróunar, rannsókna og nýsköpunar,“ segir Björn Bragi en mikill fjöldi fólks sækir, að hans sögn, húsið á hverjum degi og þar rekur World Class eina best útbúnu líkamsræktarstöð landsins.

„Staðsetning Grósku í Vatnsmýri er afar spennandi en tugþúsundir sækja nám og vinnu í næsta nágrenni. Þá hefur íbúabyggð í grenndinni farið ört stækkandi. Við erum virkilega spenntir fyrir því að opna VERU og starfa í þessu skemmtilega umhverfi.“

Hafsteinn Júlíusson, annar helmingur HAF Studio, segir það skemmtilega áskorun að hanna í þessu umhverfi. „Gróska er magnað hús og það er skemmtileg áskorun að skapa umhverfi og upplifun sem fellur vel að stíl og stemningu hússins. Við ákváðum að leitast við að skapa eitt samræmt útlit í innréttingum frekar en að hver og einn staður skeri sig úr. Upplifunin á að vera svolítið eins og þú sért að koma inn á einn veitingastað, sem hefur heildrænt og fágað yfirbragð, en búi samt sem áður yfir afslöppuðu andrúmslofti með fjölbreytileika í mat og drykk.“

„Við völdum að fara í náttúrulega eik í bland við hágæða leður, króm og steypu í efnisvalinu. Ljósar gardínur, dempuð ljós og einfaldleiki í formsköpun skapa umhverfi sem fólki líður vel í og fólk vill sitja lengur,“ bætir Hafsteinni við. „Við lítum svo á að VERA í Grósku verði ákveðið kennileiti í borginni um ókomna tíð og þar muni fólk eiga góðar samverustundir og skapa minningar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert