Sernik-ostakaka frá Póllandi

„Hér er á ferðinni ostakaka að pólskum sið. Twaróg-osturinn er vinsæl ostategund í Póllandi og mikið notaður í matseld og bakstur þarlendis. Ég er búin að smakka hann fram og til baka og mín lýsing á honum er að ég myndi segja þetta væri mitt á milli þess að vera kotasæla eða rjómaostur og ég þarf klárlega að prófa að nota þennan ost á fleiri vegu,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa ostaköku en í hana er notaður hinn frægi twaróg-ostur.

„Þar sem ég hef enga reynslu í að vinna með þessa tegund af osti skoðaði ég nokkur pólsk blogg og datt inn á þessa uppskrift á Everyday Delicious og breytti henni ekki mikið. Vildi meira prófa að vinna með ostinn og átta mig á honum út frá reynslu einhvers sem þekkir hann betur, svo getur maður farið að leika sér með hann í framhaldinu,“ segir Berglind og við hvetjum ykkur til að prófa þessa dýrindisköku.

Ostakaka að pólskum sið

Botn og toppur
  • 250 g hveiti
  • 25 g bökunarkakó
  • 100 g sykur
  • ½ tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 150 g smjör (kalt í teningum)
  • 1 eggjarauða
  • 50 g súrmjólk
  • 1 tsk. vanilludropar

Aðferð:

  1. Blandið þurrefnunum fyrst saman og hellið þá restinni af hráefnunum saman við.
  2. Hnoðið saman í höndunum. Smjörið mýkist aðeins upp við það og hnoðið þar til þið náið að þjappa allt vel saman.
  3. Skiptið deiginu þá niður, ca 2/3 og 1/3 . Setjið báða hluta í plastfilmu og þann minni í frystinn (til að rífa ofan á toppinn síðar) og þann stærri í kæli í um 40 mínútur.
  4. Hitið þá ofninn í 180°C.
  5. Setjið bökunarpappír í botninn á 24-26 cm stóru springformi og spreyið næst með matarolíuspreyi.
  6. Takið deigið úr kælinum, linið það aðeins upp með því að hnoða það og þjappið því næst yfir botninn og örlítið upp á hliðarnar.
  7. Bakið í 15 mínútur og útbúið ostakökufyllinguna á meðan.
Ostakökufylling
  • 200 g smjör við stofuhita
  • 6 eggjarauður
  • 250 g sykur (tvískiptur)
  • 1 kg twaróg-ostur frá Mjólkursamsölunni
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1 msk. appelsínubörkur
  • 7 eggjahvítur
  • 40 g vanillubúðingsduft (Royal)

Aðferð:

  1. Þeytið saman smjör, eggjarauður og helminginn af sykrinum þar til létt og ljóst.
  2. Setjið á meðan twaróg ostinn í skál og hnoðið/jafnið aðeins í höndunum svo hann losni vel í sundur og verði jafnari.
  3. Bætið honum ásamt vanilludropum og appelsínuberki saman við smjörblönduna, skafið vel niður á milli.
  4. Þeytið eggjahvíturnar í annarri skál ásamt restinni af sykrinum þar til topparnir halda sér, bætið þá vanillubúðingsduftinu saman við og hrærið saman stutta stund í viðbót.
  5. Vefjið til að byrja með um ¼ af eggjahvítublöndunni saman við ostablönduna með sleikju.
  6. Bætið restinni síðan saman við í nokkrum skömmtum og blandið áfram varlega saman.
  7. Hellið að lokum ostablöndunni yfir kexbotninn sem búið er að taka úr ofninum.
  8. Rífið að lokum deigið sem er búið að vera í frystinum niður með grófu rifjárni og dreifið yfir ostakökufyllinguna.
  9. Bakið í 70 mínútur og leyfið síðan að kólna í að minnsta kosti þrjár klukkustundir áður en þið takið úr forminu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert