Nýtt Pepsi væntanlegt í takmörkuðu upplagi

Snillingarnir hjá Pepsi hafa verið duglegir að búa til nýjar og spennandi útfærslur á drykknum góða og nú er enn ein snilldin væntanleg í verslanir.

Það er Pepsí með síróps-bragði.

Gosið er unnið í samstarfi við bandarísku veitingastaðakeðjuna Ihop og er að sjálfsögðu aðeins í boði vestanhafs í skamman tíma en við skorum enn og aftur á Ölgerðina að brydda upp á sniðugum nýjungum til að gleðja aðdáendur sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert