Fátt hefur verið meira rætt um undanfarnar vikur en ákvörðun Jóns Arnars Guðbrandssonar, veitingamanns, að ráða fólk á besta aldri í þjónustustörf á nýjum veitingastað sínum, Grazie Trattoria.
Staðurinn er einstaklega glæsilegur og hlýlegur, býður upp á frábæran mat og þjónustan er upp á tíu!
Eins og vera ber var skellt í gott opnunarhóf á föstudaginn og var húsfyllir eins og við var að búast.