Guðdómlegt lambalæri Lindu Ben

Ljósmynd/Linda Ben

Hér fer matarbloggarinn Linda Ben mikinn og leikur sér með dýrindis lambalæri sem er hvítlauks- og piparkryddlegið. Meðlætið er dýrindis sósa, marineraðir tómatar og smjörsteiktir sveppir. 

Hvítlauks og piparkyddlegið lambalæri með smjörsteiktum sveppum, marineruðum tómötum, kartöflubátum og fersku salati

  • Hvítlauks og piparkryddlegið lambalæri frá SS

Aðferð:

  1. Takið lambalærið út úr kæli og leyfið því að standa við stofuhita í u.þ.b. 2-3 tíma.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 160°C.
  3. Setjið lambalærið í eldfastmót ásamt timjan og rósmarín og setjið kjöthitamæli inn í miðjuna á kjötinu, bakið þar til kjarnhiti nær 60°C (meðalsteikt), tími fer eftir hversu stórt lærið er og hversu kalt það var þegar það fór inn í ofninn, en við erum alltaf að tala um klukkutíma +.

Rjómasveppasósa

  • 1/2 laukur
  • 250 g sveppir
  • 2 msk. smjör
  • 3 hvítlauksrif
  • 500 ml rjómi
  • vökvinn sem fellur til af lambakjötinu inn í ofninum
  • 2 stk. nautakrafts teningar eða eftir smekk, fer eftir því hversu mikið af vökva fellur til af kjötinu.
  • 1 dl rauðvín
  • svartur pipar og salt eftir smekk
  • 1 msk. gráðostur
  • sósulitur eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið laukinn fínt niður og steikið hann upp úr örlitlu smjöri.
  2. Skerið sveppina niður og bætið þeim út á pönnuna ásamt restinni af smjörinu, steikið þangað til mesta vatnið af sveppunum er gufað upp.
  3. Pressið þrjú hvítlauksrif út á og steikið létt í 1-2 mín, hellið svo rjómanum út á. Bætið kraftinum sem féll af lambakjötinu út í sósuna ásamt teningunum rauðvíninu, smá pipar og salt og gráðostinum.
  4. Látið sósuna sjóða svolítið og bætið svo meira af kjötkrafti, salt og pipar, rauðvíni og gráðosti eftir smekk.

Marineraðir tómatar

  • 4 stórir tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 dl hágæða jómfrúar ólífu olía
  • 2 msk. balsamik edik með hunangi
  • 1 lúka ferskt basil
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið tómatana niður í frekar þykkar sneiðar, ca 1 cm þykkar, dreifið þeim á fallegan disk.
  2. Skerið rauðlaukinn og hvítlauksgeirann mjög smátt niður og setjið í skál ásamt ólífu olíu, balsamik ediki.
  3. Skerið basil niður og setjið út í skálina ásamt salti og pipar, blandið öllu vel saman og hellið yfir tómatana.
  4. Gott að gera með smá fyrirvara og leyfa þessu aðeins að taka sig áður en þetta er borið fram.

Smjörsteiktir sveppir með timjan

  • 250 g kastaníu sveppir
  • 100 g smjör
  • u.þ.b. 5 greinar ferskt timjan

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið á pönnu og setjið sveppina út á ásamt timjan, leyfið að malla við vægan hita þar til sveppirnir eru eldaðir í gegn.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert