Svona minnkar þú rykið á heimilinu

Öll helstu húsráðin finnur þú hér á matarvefnum.
Öll helstu húsráðin finnur þú hér á matarvefnum.

Það er eins og rykið á heimilinu feli sig í veggjunum og skríð svo fram er við sofum. Hér er aðferð til að fara eftir og minnka rykmagnið á heimilinu, því við viljum svo sannarlega rykið burt.

Svona minnkar þú rykmagnið á heimilinu

  • Ef þú ert með mottu/r á gólfinu, skaltu ryksuga hana og rúlla henni síðan upp. Það þarf líka að ryksuga undir mottunni.
  • Ryksugaðu ofan á gólflistunum, þar á til að safnast mikið af ryki.
  • Þvoðu púðaver og ryksugaðu púðann sjálfann sem og sófann.
  • Umfram allt, þá skaltu lofta út daglega.

Blanda sem svínvirkar til að þurrka af með:

  • 1 bolli vatn
  • ¼ bolli edik
  • 1 msk. kókosolía
  • Nokkrir dropar sítrónuolía
  • Blandið vel saman og notið til að þurrka af með mjúkum klút.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert