Fyllt lambalæri með dýrindis piparsósu

Ljósmynd/Guðrún Ýr

Guðrún Ýr á Döðlur & smjör á heiðurinn að þessari uppskrift en hér er lærið úrbeinað sem býður upp á skemmtilega fyllingu. Guðrún notar bæði salatost og ferskar döðlur, ásamt sveppum og hvítlauk. Útkoman er upp á tíu!

Fyllt lambalæri & dýrindis piparsósa

Fyllt lambalæri

  • 1 úrbeinað læri
  • 3-4 msk Bezt á lambið krydd
  • 1 blaðlaukur
  • 2-3 sveppir
  • 5 hvítlauksrif
  • 1 salatfetakubbur
  • 10 ferskar döðlur
  • 2 msk olía
  • salt og pipar
  • Handfylli timjan (2 tsk þurrkað)
  • 2 msk Bezt á lambið krydd
  • Stillið ofn á 180°C.

Leggið úrbeinaða lærið á bretti og skerið í kjötið til að fletja kjötið eins vel út og hægt er.

Blandið þá blaðlauk, sveppum og hvítlauk saman í matvinnsluvél og setjið síðan í skál. Myljið ostinn saman við, bætið olíunni saman við. Skerið döðlurnar niður og blandið öllu saman. Kryddið þá með salt og pipar, timjan og Bezt á lambið kryddinu.

Byrjið á því að krydda kjötið með Bezt á lambið, takið þá fyllinguna og leggið á lambið og dreifið vel yfir. Rúllið þá kjötinu upp og bindið þétt með bandi sem þolir eldun, kryddið svo kjötið vel að utan með Bezt á lambið. Setjið í eldfast mót og inn í ofn í 30 mín.

Eftir 30 mín setjið lok eða álpappír yfir kjötið, hægt er að halda áfram að elda kjötið á 180°c í 1-2 klst í viðbót eða lækka hitann niður í 150°c og leyfa því að hægeldast í 3-4 klst.

Piparostasósa

  • 100 ml rjómi
  • 300 ml vatn
  • ½ piparostur
  • 1 pk Toro piparsósa

Setjið rjóma og 100 ml af vatni í pott ásamt piparosti, gott er að skera ostinn niður til að hann sé fljótari að bráðna. Þegar osturinn er bráðnaður, hristið þá saman 200 ml vatn og 1 pk Toro piparsósu í krukku t.d. og hellið út í pottinn. Leyfið sósunni að malla í örfáar mín. Flóknara er það ekki!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert