Kaffidrykkur fyrir lengra komna

Kaffidrykkurinn sem er með þeim vinsælli þar ytra.
Kaffidrykkurinn sem er með þeim vinsælli þar ytra. Mbl.is/Getty Images

Það eru ekki nema rétt um 163 þúsund myndir myllumerktar á Instagram undir nafninu #dalgonacoffee – sem segir okkur að þessi vinsæli kaffidrykkur sé með þeim vinsælli. Hér er uppskrift að „Dalgona“ kaffi eins og drykkurinn þekkist hvað best þar ytra.

Kaffidrykkur fyrir lengra komnar

  • 2 msk. tilbúið kaffi
  • 2 msk. sykur
  • 2 msk. heitt vatn
  • 1 dl mjólk
  • Ísmolar

Aðferð:

  1. Hellið kaffi, sykri og heita vatninu í skál og pískið með handþeytara, þar til blandan verður að ljósbrúnni froðu.
  2. Setjið ísmola í glas og hellið mjólkinni yfir, og setjið því næst þeyttu froðuna yfir.
  3. Berið kaffið fram með skeið og blandið saman að vild.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert