Best geymda leyndarmál flugfreyjunnar

María Gomez
María Gomez

„Böggumix, hvar á ég eiginlega bara að byrja ? Jú, kannski ég byrji aðeins á að segja ykkur frá þessu geggjaða og góða hnetumixi sem sló svona rækilega í gegn á námskeiði sem ég var á nýlega. Það var hin fagra Bagga sem mætti með svona alla daga námskeiðsins, sem var bæði afar skemmtilegt en jafnframt krefjandi,“ segir matarbloggarinn og flugfreyjan María Gomez á Paz.is um þetta ofursnjalla leyndarmál sem við hin sem erum föst niðri á jörðinni getum leikið eftir.

„Góðar fitur eins og omega 3 og omega 6 fitusýrur spila eflaust þar stórt hlutverk, ásamt c-vítamín og andoxunarríku rúsínunum sem hún notar og sykursætu möndlunum sem gera allt sætara og betra. Þessi orkuríka blanda er einnig afar saðsöm og maður helst vel og lengi saddur af einni lúku ásamt því að öll frekari sykurlöngun hverfur eins og dögg fyrir sólu. Mixið er afar einfalt að gera og það þarf í raun bara 3 hráefni til að blanda saman í Zip it poka eins og hin eina sanna Bagga gerði það. Í nestið, veskið eða bara til að möndsa á þá er þetta algjör snilld og ég lofa þú munt elska þetta.“ 

Böggumix - best geymda fegrunarleyndarmál flugfreyjunnar

  • 1 Dúnkur Extra Fancy mixed nuts frá Kirkland úr Costco 
  • 4 pakkar af Sun Maid Sour raisins snack með blueberry og mixed berry bragði eða bara annað hvort (fæst í Bónus m.a)
  • 2 pokar af H-Berg karamellu möndlum (fæst í Bónus og víðar)
  • Þið getið séð mynd af þessu öllu hér að neðan 

Aðferð

  1. Takið góðan zip it poka eða stóra skál og hellið öllu saman 
  2. Hrærið eða hristið vel saman 
  3. Mér finnst rosa gott að skipta þessu svo niður í nokkra poka og eiga fyrir nesti eða í veskið, jafnvel í bílinn 
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert