Bestu bollakökurnar hennar Berglindar

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Þessar bollakökur eru svo bragðgóðar að það er leitun að örðu eins. Lakkrískeimurinn er ekki of yfirþyrmandi og slær akkúrrat rétta tóninn til að gera kökuna fullkomna!

Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld en fáir eru jafn flinkir að baka og hún.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Bollakökur með lakkrískeim

12-14 stykki

Bollakökur uppskrift

  • 2 egg
  • 100 g sykur
  • 100 g púðursykur
  • 80 ml ljós matarolía
  • 120 ml súrmjólk
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 110 g hveiti
  • 40 g bökunarkakó
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 1 pakki Eitt sett Royal búðingur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til bollakökuform. Best þykir mér að nota álform með pappaformum inn í.
  2. Þeytið saman egg og báðar tegundir af sykri þar til létt og ljós blanda myndast.
  3. Pískið saman matarolíu, súrmjólk og vanilludropa, geymið.
  4. Hrærið hveiti, kakó, lyftiduft, matarsóda og salt saman, geymið.
  5. Blandið nú til skiptis þurrefnunum og súrmjólkurblöndunni út í eggjablönduna og skafið niður á milli.
  6. Að lokum má hræra búðingsduftið saman við stutta stund.
  7. Skiptið næst niður í 12-14 bollakökuform og bakið í 20-22 mínútur.
  8. Kælið áður en þið setjið kremið á.

Súkkulaði smjörkrem uppskrift

  • 150 g smjör við stofuhita
  • 50 g bökunarkakó
  • 500 g flórsykur
  • 3 msk. kaffi (uppáhellt)
  • 3 msk. hlynsýróp
  • 2 tsk. vanilludropar
  1. Þeytið smjör og kakó þar til létt og ljóst, skafið niður á milli.
  2. Bætið öðrum hráefnum saman við til skiptis og þeytið áfram í nokkrar mínútur, skafið niður á milli.
  3. Setjið í sprautupoka með stórum stjörnustút (ég notaði 1M frá Wilton) og sprautið upp í spíral.
  4. Skreytið með lakkrískurli ef þess er óskað.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert