Tacó partýið sem allir vildu vera boðnir í

mbl.is/Instagram_Matarmenn

Þegar þú vilt gefa enn meira í taco veisluna og matreiða þennan rétt í alvöru mexíkósku þema – þá er þetta uppskriftin sem við mælum með að prófa. Hér eru Matarmenn að störfum sem hafa matreitt steik og skorið niður í þunnar sneiðar og fyllingarnar koma hér með sem setja stemninguna í bragðlaukana.

Eðal útgáfan af taco rétti

Mango salsa

  • 1 mangó
  • 1 chili
  • ¼ bolli ólífu olía
  • Ferskt kóríander
  • ½ kreist lime
  • Salt
Allt skorið smátt og blandað saman.

Jalapeno feta sósa

  • 1 dolla sýrður rjómi
  • 50 g fetakubbur
  • 2 msk. hvítlauksduft
  • 1 jalapeno
Allt skorið smátt og blandað saman.

Appelsínu chimichurri

  • 2 msk. appelsínubörkur
  • 2 msk. appelsínusafi
  • 1 msk. lime börkur
  • 1 msk. lime safi
  • 60 ml ólífuolía
  • 1 vorlaukur
  • ½ bolli kóriander
  • ¼ bolli steinselja
  • 2 kreistir hvítlauksgeirar
  • 1 chili
  • Salt
Allt skorið smátt og blandað saman

Sítrus kjöt marinering

  • 2 msk. appelsínubörkur
  • 1 msk. lime börkur
  • ½ bolli appelsínusafi
  • 2 msk. lime safi
  • 2 msk. ólífu olía
  • 2 msk. hunang
  • 2 kreistir hvítlauksgeirar
Allt skorið smátt og blandað saman.
Þetta taco er algjörlega geggjað!
Þetta taco er algjörlega geggjað! mbl.is/Instagram_Matarmenn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert