Lúxus smjörálegg vekur athygli

Smjörálegg með trufflu bragði - gjörið svo vel.
Smjörálegg með trufflu bragði - gjörið svo vel. mbl.is/Marmite

Það hlaut að koma að því að smjörálegg sem þetta myndi detta í þann flokk að kallast „lúxus“.

Smjöráleggið Marmite var að senda frá sér splúnkunýja afurð, og það í óvæntri pörun í bragðsamsetningu – því hér sjáum við áleggið með trufflu bragði. Að sögn framleiðanda er þetta nýja bragð, pakkað af lúxus umami bragði og jarðneskum ilmi. Fullkomið til að bragðbæta pottrétti eða pastasósur ef því er að skipta. Fyrstu ummæli sem matarvefurinn komst yfir á netinu, gefa til kynna að fólk þar ytra sé almennt ánægt með þessa nýju vöru – enda er ansi margt sem smakkast betur undir truffluáhrifum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert