Ein mest spennandi nýjungin á íslenskum matvælamarkaði

Ljósmynd/Gott í matinn

Íslenskur Twaróg er nýr ferskur ostur sem á rætur að rekja til Póllands. Twaróg er ferskur og bragðmildur með rjómakenndu bragði sem nýtist á afar fjölbreyttan hátt, t.d. sem álegg á brauð með ýmsu grænmeti, kryddjurtum og pestói.

Twaróg salat með radísum og graslauk

  • 2 brauðsneiðar að eigin vali
  • 1 stk. íslenskur Twaróg ostur
  • 4 stk. radísur
  • ferskur graslaukur
  • 1 dós sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Skolið radísur með köldu vatni og skerið þrjár í litla teninga og eina í þunnar sneiðar
  2. Skolið graslaukinn með köldu vatni og saxið smátt.
  3. Hrærið varlega saman Twaróg osti, radísunum sem skornar voru í teninga og graslauknum þar til hefur blandast vel saman. Geymið smá af graslauk til að setja ofan á brauðið.
  4. Bætið sýrðum rjóma saman við blönduna og kryddið eftir smekk með salti og pipar.
  5. Hrærið í salatinu þannig að innihaldið blandist vel saman.
  6. Smyrjið að lokum salatinu á brauðsneiðar, skreytið með sneiddum radísum og söxuðum graslauk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert