Veislubakkarnir sem eru að gera allt vitlaust

Við heyrum ótrulega vel látið af veislubökkum sem eru að gera allt vitlaust og eftir að hafa sannreynt, þá tökum við í sama streng.

Veisluhöld og annarskonar viðburðir eru komin á blússandi skrið, og það ekki að ástæðulausu því við höfum legið nógu lengi í dvala síðustu tvö árin. Veislubakkarnir frá KORE hafa verið vinsælir í mannfögnuðum víða um borgina, enda bragðmiklir gúrmei bitar á einum bakka. 

Veitingastaðurinn hefur stimplað sig rækilega inn í matarhjörtu landsmanna með góðu hráefni og útfærslum á mat undir kóreskum áhrifum. Valið á veislubökkunum stendur á milli margra rétta, t.d. mini taco með kjúklingi, nauti, spæsí svínasíðu eða stökku blómkáli – nú eða blómkálsvængir, kjúklingavængir, kjúklingalundir, ýmis spjót, dumplings og margt fleira girnilegt. Hægt er að skoða nánar og panta á síðunni þeirra HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert