Brauðbollur danska listakokksins

Brauðbollur eins og þær gerast bestar.
Brauðbollur eins og þær gerast bestar. mbl.is/STINE CHRISTIANSEN /SKOVDAL&SKOVDAL, MARIA P.

Það er enginn annar en stórkokkurinn Claus Meyers sem býður okkur upp á þessa uppskrift að hveitibollum – sem henta vel í nestispakkann eða í brönsinn um helgar. Hér eru ekta bollur á danska vísu.

Brauðbollur danska listakokksins

  • 15 g ger
  • 1¾ dl kalt vatn
  • 1¾ dl köld nýmjólk
  • 2 egg
  • 700 g hveiti
  • 55 g sykur
  • 10 g muldar kardimommur
  • 10 g salt
  • 55 g mjúkt smjör

Aðferð:

  1. Byrjið á því að blanda öllu hráefninu saman í skál – líka smjörinu.
  2. Hnoðið deigið kröftuglega í höndunum eða í hrærivél. Það tekur aðeins lengri tíma að hnoða smjörið inn í deigið þegar hnoðað er í höndunum. Byrjið á því að hnoða deigið saman í skálinni og hnoðaðu svo deigið vel á borðinu í ca. 6-8 mínútur.
  3. Látið deigið hvíla í skálinni í 5 mínútur og hnoðið það síðan áfram í 2 mínútur. Mikilvægt er að deigið fái að hvíla eftir hnoðun, t.d. á köldum stað eins og í ísskáp yfir nótt - eða á hlýrri stað eins og á eldhúsborðinu í ½-1 klst (ef þú þarft að nota deigið fljótt). Vefjið deigið inn í eldhúsfilmu, eða setjið það í plastfötu með loki eða filmu yfir.
  4. Skerið deigið í 15 bita. Mótið bollur með því að setja deigstykki á annan lófann og rúlla því með fingrum hinnar handarinnar. Setjið bollurnar með 5 sm millibili á bökunarplötu með bökunarpappír.
  5. Látið bollurnar hefast í 2-3 klst. Þegar deigið lyftist slakar það á og gerið fær að vinna vinnuna sína. Á meðan á lyftingunni stendur skaltu fylgjast með stærð deigsins. Það á að næstum tvöfaldast að stærð. Hversu langan tíma það tekur, fer eftir hitastigi deigsins og hitastiginu í rýminu. Mikilvægt er að breiða yfir deigið á meðan það er að hefast, til að yfirborðið þorni ekki og springi. Ef yfirborðið verður svolítið þurrt má pensla það með þeyttu eggi.
  6. Bakið bollurnar í ca. 15--20 mínútur við 180°. Færið þær yfir á grind og látið kólna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert