Byrjaði að brugga í bílskúrnum

Hákon Freyr.
Hákon Freyr. Kristinn Magnússon

Í Hafnarfirðinum er að finna eimingarhúsið Hovdenak, þar sem Hákon Freyr Hovdenak stundar sína iðju af miklu kappi. Vörur frá Hovdenak Distillery eru margverðlaunaðar um heim allan en nafnið er komið frá fjölskyldu Hákonar og á rætur að rekja til Molde í Noregi. Í dag rekur Hákon fyrirtækið ásamt eiginkonu sinni, Brynju Hjaltalín og að þeirra sögn er ekkert nema tækifæri framundan. 

Fyrsta vara Hovdenak varð til í bílskúr í Hafnarfirði, þar sem að Hákon stundaði heimabrugg. Eftir nokkur ár í vöruþróun varð uppskriftin að Stuðlabergs-gini til, sem er notuð í dag. Þetta var fyrir 13 árum síðan. „Bílskúrsbruggið byrjaði með áhuga mínum á bæði gerjun og eimingu áfengis,” segir Hákon. „Ég gerði nánast allt þarna; bjór, vodka, gin, romm, viskí, sérrí. Strax þarna í bílskúrnum var ég betur búinn tækjum en flestir. Ég var með tölvutengd tæki sem sáu um sig sjálf. Öll þessi tæki voru smíðuð á staðnum og þessa þekkingu tók ég með mér áfram þegar ég setti upp brugghúsið í Hafnarfirðinum, sem er einnig alsjálfvirkt.”

Kristinn Magnússon

Hákon segir að rekstur fyrirtækisins hafi gengið vel og þeim hafi verið gríðarlega vel tekið, bæði á íslenskum sem erlendum markaði. „Fyrsta árið í rekstri félagsins fór í að smíða eimingarhúsið sjálft en hér var allt rifið út og settur upp fullkominn búnaður. Öðru árinu eyddi ég í að koma fyrstu vörunni okkar á markað og kynna fyrirtækið út á við. Á þriðja árinu kom alvöru gangur í söluna og í framhaldinu fjölguðum við vörunum og konan mín, hún Brynja, gekk til liðs við mig. Hún sér alfarið um sölu- og markaðsmál hjá okkur. Nú erum við að byrja okkar fjórða ár í rekstri og lítum við bjartsýn fram á veginn og sjáum við ekkert nema tækifæri framundan.”

Hovdenak Distillery hefur átt góðu gengi að fagna í erlendum keppnum og unnið til fjölda verðlauna. Hákon segir að það skipti virkilega miklu máli, bæði sé það viðurkenning á vörunni og auðveldara sé að selja hana. „Verðlaunin skipta okkur mjög miklu máli og einnig neytendur, því verðlaunin segja til um það að varan sé í úrvalsflokki á heimsvísu. Fólk tekur eftir verðlaunamerkingunum þegar þær eru settar á flöskurnar og þetta er ákveðinn gæðastimpill.

Fólk vill hafa gott í glasinu

Hákon segir að almennt séu íslenskir veitinga- og skemmtistaðir ásamt hótelum, mjög opin fyrir góðum íslenskum vörum, sérstaklega þar sem að erlendir ferðamenn koma mikið til Íslands í leit að íslenskri upplifun. „Þeir geta fengið stóru þekktu vörumerkin í sínu heimalandi og eru þar af leiðandi mun spenntari fyrir því að komast í íslenskar vörur. Eins eru Íslendingar í auknum mæli að leita eftir góðum vínum. Það má að mörgu leyti rekja til aukins áhuga á kokteilagerð, bæði á börum og í heimahúsum. Fólk vill hafa eitthvað gott í glasinu sínu.”

Vínmenningin mikið breyst

„Á síðustu 10 árum hefur áfengisneyslan breyst mjög mikið hér á landi; úr því að drekka til að verða bara fullur, yfir í drekka til að njóta. Nú erum við farin að hugsa frekar um hvaðan varan kemur og hvort einhver gerviefni séu í henni eða hvort þetta sé hrein gæðavara sem skarar fram úr,” segir Hákon og ítrekar aftur áhuga landamanna á kokteilagerð og hvernig mismunandi áfengistegundir passa við ákveðið bragð og þess háttar. Það séu heilmikil vísindi á bak við góðan drykk og áhugafólki fari sífellt fjölgandi.

Kristinn Magnússon

Stuðlabergið vinsælast

Spurður að því hver vinsælasta varan sé, segir Hákon að Stuðlabergs-gin sé langvinsælast. Þar á eftir komi kartöfluvodkinn Loki sem hefur unnið hafi þó nokkur verðlaun fyrir gæði og mýkt. „Svo kemur Rökkvi, kaldbruggaði kaffilíkjörinnn, sem hefur slegið í gegn og loks er það ljósa rommið okkar Hvítserkur, en væntanlegt er dökkt og kryddað romm í ár. Einnig erum við með yndislegt bleikt gin sem er með jarðaberja- og hindberjabragði,” segir Hákon. 

Hvernig er rekstrarumhverfi fyrir brugghús hér á landi?

„Eftir að ÁTVR lokaði fyrir undanþágu íslenskra framleiðanda í verslanir þeirra, þá er heldur betur farið að þrengja að okkur. Ef við viljum koma með nýja vöru á markað í dag þá þurfum við að bíða í 6-12 mánuði eftir að þeir setji vöruna okkar í hillurnar. Áfengisgjöldin hækka svo á hverju ári og enda alltaf beint á kaupanda vörunnar,” segir Hákon sem vill gjarnan sjá áfengislöggjöfina endurskoðaða í heild sinni. „Það væri góð byrjun til að ýta undir og hjálpa litlum eimingarhúsum eins og okkur að leyfa sölu áfengis „beint frá bónda“ eins og er þekkt í öðrum löndum, það færi vel í saman við heimsóknirnar sem við bjóðum upp á.”

Vert sé jafnframt að geta þess að þeir sem flytji inn áfengi geti nýtt sér frílager þar sem engir tollar séu greiddir af vörunum fyrr en hún sé leyst út. „Þetta getum við framleiðendur ekki nýtt okkur þegar við seljum vöru frá okkur. Þegar að varan er tilbúin á flösku eftir pökkun, skuldum við í raun áfengisgjald af vörunni. Í stað þess að geta sett vöruna inn á frílager og selt hana þaðan, til dæmis til dreifingaraðila án gjalda,” segir Hákon.

Íslenskt áfengi samkeppnishæft

„Við keppum kannski ekki við risana en ef þú kannt að meta gæði og handverk þá erum við vel samkeppnishæf á því sviði,” segir Hákon en hann segir stærsta sölupunktinn ávallt vera hreina íslenska vatnið. „Svo er sérstaða okkar hjá Hovdenak Distillery sú eimingaraðferð sem við notum við framleiðsluna okkar sem skilar sér í ótrúlegri mýkt og áferð í glasinu þínu. Eiming á sér stað við lofttæmi við mun lægra hitastig en hefðbundið er. Þetta kemur í veg fyrir að bragð skemmist við eiminguna. Tækin eru einnig alsjálfvik og geta unnið mannlaus allan sólarhringinn, allt árið um kring. Afkastageta þessa tækja er um 40.000 lítrar á mánuði sem gera tækin með þeim afkastamestu á landinu í áfengisgerð.

Útflutningur er á dagskránni hjá Hovdenak Distillery en hann var kominn á ágætis skrið. „Við vorum byrjuð í útflutningi korter fyrir Covid og erum að byrja það ferli aftur. Í dag höldum við uppi vefverslun fyrir þá sem eru erlendis og vilja nálgast vörurnar okkar. Þar er töluverð eftirspurn frá ferðamönnum sem hafa komið til Íslands og fengið vörurnar okkar á hóteli eða veitingastað sem þeir sóttu og vilja fá sömu góðu íslensku vöruna heim til sín,” segir Hákon. „Fyrir Covid vorum við komin á gott ról í Kína, Singapore, Þýskalandi, Sviss, Austurríki og Danmörku.“

Kristinn Magnússon

Bjóða áhugasömum í heimsókn

„Við höfum verið að fá í auknum mæli fyrirspurnir frá fróðleiksfúsum Íslendingum sem og ferðamönnum um heimsóknir til okkar sem vilja koma og skoða eimingarhúsið. Við tökum á móti fólki og fyrirtækjum og öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast þessari skemmtilegu framleiðslu. Þá er fræðst um hvernig varan er gerð, allt framleiðsluferlið og að sjálfsögðu er það gert með glas í hönd. Oft kemur fyrir að smakkað er á vörum sem er ekki enn komnar á markað, sem er alltaf skemmtilegt,“ segir Hákon en fyrir áhugasama er tekið á móti bókunum í heimsóknir á info@distillery.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert