Hér gefur að líta eftirrétt sem er í senn alveg hreint fáránlega bragðgóður og einfaldur. Við erum að tala um að uppáhaldi þjóðarinnar; Eitt sett búðingnum góða hefur verið breytt í súkkulaðimús og útkoman er stórkostleg.
Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld.
Veislumús með lakkrískeim
Uppskrift dugar í 20-25 lítil plastbox
- 1 pk. Royal Eitt sett búðingur
- 250 ml nýmjólk
- 250 ml rjómi + 300 ml þeyttur
- Jarðarber
- Lakkrískurl
- Smátt saxað súkkulaði
Aðferð:
- Pískið saman búðing, nýmjólk og 250 ml rjóma í skál samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Skiptið niður í lítil plastglös (einnig hægt að að setja í stærri glös eða stóra skál).
- Kælið í að minnsta kosti klukkustund og skreytið með þeyttum rjóma, lakkrískurli og jarðarberi.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir