Svona gerir þú fullkomið ískaffi með froðu

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér er á ferðinni ótrúlega gott ískaffi með súkkulaðibragði. Það er gaman að prófa sig áfram með kalda kaffidrykki nú þegar sumarið nálgast. Þessi er mjög einfaldur og góður um leið og hann er fallegur og fágaður!

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld en froðan er það sem við köllum meistarastykki!

Sumarlegt súkkulaði ískaffi

2 skammtar

  • 150 ml G-mjólk
  • 150 ml Hleðsla með súkkulaðibragði
  • kaffifroða (sjá uppskrift hér fyrir neðan)
  • bökunarkakó

Kaffifroða

  • 2 msk. skyndikaffi (Nescafé)
  • 2 msk. sykur
  • 2 msk. sjóðandi vatn Kaffifroða

Þeytið allt saman þar til létt og ljós kaffifroða hefur myndast.

Áferðin á að minna á þeyttan rjóma.

Súkkulaði ískaffi

Hrærið saman G-mjólk og Hleðslu.

Hálffyllið glas með klökum og skiptið blöndunni niður í glösin.

Toppið með kaffifroðu og stráið smá bökunarkakó yfir.

Hrærið síðan öllu saman og njótið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert